Til ykkar elskurnar mínar litlu...

Elsku Emma, Matilda og Mía....

Það líður ekki sú stund, mínúta, klukkutími, dagur að ég hugsi ekki um ykkur, þið eruð í huga mér þegar ég vakna og líka þegar ég sofna...

Ég elska ykkur kringum jörðina og til baka...

Ég er með ykkur hvert sem þið farið og hvar sem þið eruð, þar sem þið hafið mig í hjartanu...

Þangað til að þið komið heim aftur bið ég alla englana sem til eru að passa ykkur...

Ég veit að þið eruð duglegar og vitið að mamma ykkar er á leiðinni að vernda ykkur frá öllu illu...

Hér fylgir ein bæn með sem er góð fyrir krakka eins og ykkur....

Vertu nú yfir og allt um kring
Með eilífri blessun þinni
Sitji Guðs englar saman í hring
Sænginni yfir minni.

(Sigurður Jónsson frá Prestshólum)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kærar kveðjur og hjartans óskir um að blessuð börnin fái að hitta mömmu sína og koma heim.

Jónína Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 23.7.2012 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband